Barna- og æskulýðsstarf
Þegar barn er skírt tökum við á okkur þá ábyrgð að ala það upp í kristinni trúarhugsun, kenna því bænir og fræða það um kristin gildi. Þetta er sameiginlegt verkefni Kirkjunnar og heimilisins.
Það er mikill munur á mætingu í sunnudagaskólann nú en áður. Ýmsar ástæður geta verið fyrir því . Fleira er í boði en áður og kröfur á foreldra eru meiri um að fylgja börnum sínum eftir en áður var. Í fermingarfræðsluna koma sífellt fleiri börn sem ekki kunna Faðir vorið og hafa jafnvel aldrei farið í sunnudagaskólann. Þetta er ekki ásættanleg staða og spurning hvað er til ráða?
Ein leiðin er að gefa út meira barnaefni fyrir almennan markað. DVD diskurinn, Daginn í dag, hefur reynst vel en ég verð vör við að fólk er alltaf jafn hissa þegar það sér diskinn, því það vissi ekki um hann. Kannski þurfa söfnuðirnir að vera meira vakandi fyrir því að segja frá honum.
En sunnudagaskólinn í stofunni heima kemur aldrei í staðinn fyrir sunnudagaskólann í kirkjunni. Við erum í svolítilli kreppu varðandi barnastarfið í kirkjunni vegna þess að við höfum lagt svo mikla áherslu á fræðsluna á kostnað helgihaldsins. Það er líka eðlilegt þar sem fræðslan hefur sífellt meira færst á söfnuðina eingöngu, því ekki er hægt að gera ráð fyrir kristindómsfræðslu í öllum skólum. Enda hefur umræðan ekki verið hvetjandi í þeim efnum.
Við þurfum að vinna markvisst að því að koma þeim hugsunarhætti að hjá foreldrum ungra barna að það skipti jafnmiklu máli að barnið mæti í sunnudagaskólann og annað barnastarf kirkjunnar eins og að stund íþróttir eða borða hollan mat. Það gerum við með sameiginlegu átaki fræðsludeildar Kirkjunnar, stuðningi við starfsfólk safnaðanna og leiðtogaþjálfun. Eins þarf að fylgja átakinu eftir þannig að þau sem „starfa á planinu“ hafi endalausa orku til að gefa af sér og miðla.
Svo þarf að nota vel þá miðla sem börn og unglingar nota í dag. Gera aðlaðandi efni við hæfi. Þá er samstarf við aðrar kirkjur mikilvægt. Litla háflþýska frænka mín kann t.d. mjög mikið í Biblíusögum vegna þess að hún fer inn á vef þar sem er ýmislegt í boði fyrir börn, þar á meðal teiknaðar Biblíusögur með lesnum texta. Þannig fékk hún áhuga á að skoða Barnabiblíuna sem ég gaf henni þegar hún var ennþá minni og æfa sig í íslenskunni í leiðinni.
Ef Kirkjan fer út í það að koma með áætlun um barnastarf kirkjunnar í nánustu framtíð er nauðsynlegt að fylgja því vel eftir á öllum þeim vígstöðvum sem nútíminn býður upp á. Það má aldrei sofna á verðinum.


